inicio mail me! sindicaci;ón

Leningrad

Það hefur vart farið framhjá neinum að Glitnir er orðinn þjóðnýttur, að krónan sé sprungin, verðbólgan er 15% og Geir H. Haarde ekki að gera sig.

Mig langar að deila minum skoðunum á þessu. Þær eru ekki allar sagðar hér, en ég reyni að deila með mér meirpartin af þeim.

Þegar það var byrjað að virkja Kárahnjúka þá varaði Steimgrímur J. Sigfússon við því að íslenska hagkerfið myndi ekki þola miklar stóriðjuframkvæmdir. Það er aldrei að vita hvort að það hefði þolað þessar stóriðjuframkvæmdir einar og sér - það gæti vel verið.

Í bland við útrás bankana og fyrritæki, stóriðjuframkvæmdar, mikil útlán banka og mikil innlán og mikil einkavæðing. Allt þetta saman hefur sprengt krónuna. Árangurinn sjáum við í dag. Hvað hefði átt að gera í staðin er ég ekki maður að segja til um, ég hef ekki kunnáttu til að geta dæmt um það, en mér finnst augljóst að einhvað hefur farið vitlaust.

Eitt af því sem mér finnst hvað vitlausast eru starfslokasamingar. Þegar að Bjarni Ármansson hætti sem forstjóri Glitnis í fyrra (kanski er þetta allt honum að kenna?) þá fékk hann 100 miljónir. Þá var ráðinn Lárus Welding sem fékk 300 miljónir fyrir það eitt að byrja.

Ofná 100 miljónirnar sem að Bjarni Ármannson fékk þá bætast við 90 miljónir sem hann fékk í laun 2007. Maður ætti kanski að bæta því við að hann vann 4 mánuði 2007? . Ofan á þetta græddi Bjarni um 381 miljón króna þegar hann nýtti sér forkaupsrétt á hlutabréfum. Einföld samlagning segir mér að þessi maður græddi 571 miljón krónur. Það er ekki amarlegt.

Glitnir greiddi  stjórnarmönnum og forstjórum 646 miljónir króna í laun árið 2007 og 357 miljónir króna í bónusgreiðslur eða starfslokasamninga

Það þarf varla að benda á að þarna er einhvað rangt á seyði. Þegar að svona stór fyrirtæki eru með svona samninga við forstjóra og eru ekki hræddir við að fela þá frá almenningi, þá er aldrei hægt að vita hvða leynist á bakvið tjöldin.

Það sem mér er hisnvegar farið að gruna að núna eftir þessa misheppnuðu hægrisveiflu á íslandi seinstu árin (það er jú sú pólík sem hefur komið okkur í þessa súpu) þá mun koma kröftug vinstrisveifla. Sjöundu áratugurinn á leiðinni tilbaka? Ungliðahreyfing VG er að komast á gott skrið, kanski er ekki langt í stórar mótmælagöngur niður laugarveginn fullur af kröfugt vinstrisinnuðum unlingum mótmælandi lýði eins og framsóknar- og sjálfstæðisflokkin, Davíð Kóng, Geir Haarde och fleiri? Niður með bankana? Ríkisvæðið!

En svo gæti vel verið að þetta verði bara allt einkavætt?

The bananas are here.

Átak gegn hnífaglæpum ber árangur

Það er einhvað stórfenglega bogið við þetta. Meira en 1200 manns en bara 528 hnífar. Það er það amk 672 manns sem hafa verið handteknir fyrir hnífaglæpi, en ekki einu sinni haft hníf.

Where did all the bananas go?

Svona gerist þegar maður lærir mikið.. Fer alveg í þrjú eintök og útaf því að ég er svo latur þá föru tvö af þeim að glápa á imban á meðan það þriðja tók mynd og setti á netið..

Protected: “No sir, i’m a dreamer”

This post is password protected. To view it please enter your password below:


Believe

Humor is perhaps a sense of intellectual perspective: an awareness that some things are really important, others not; and that the two kinds are most oddly jumbled in everyday affairs.
- Christopher Morley

Flickr

i am dancing naked in the livingroom

Já sæll. Ég fer út á morgun í vikufrí. Bara láta vita.

Retire me

Ja hérna. Blogg. Ég hef alveg steingleymt þessu undanfarið. En hvað um það, bara tímabærara að rugla aðeins í liðinu.

Það hefur gerst margt undanfarna daga. Margt til hins betra og sumt itl hins verra. Sambandið mitt hefur farið stórt skref til hins betra og það eru 13 dagar í að ég stingi af út í sólina með Hildi! Ég á eftir að koma heim rauður eins og tómatur! Eða rauður allavegana.

Og ég sá eina rosalega góða mynd í bíó. The Hunting Party. Gerðist að mestu leyti í Sarajevo, sem er einmitt staður sem að ég ÆTLA mér að skoða. Ég ætla að fara í lestarflakk um evrópu og skoða Sarajevo, Bosniu, Serbiu og þessi lönd. Það er alltaf einhvað sem hefur heillað mig við þau löndin og söguna sem hefur gerst þar - eitthvað sem mig langar að sjá með eigin augum og upplifa.

Ætti kanski að benda á það að ef einhvjerum skildi langa í blogg eða myndasíðu (einhver sem ég þekki) þá get ég boðið upp á þannig með einhverri af þessum endingum; h84.org, fjall.org og gurkubondi.net. Það væri þá auglysingarlaust og skemmtilgra blogg en einhver af þessum fríþjóunstum. Býður líka upp á margfallt meiri sveigjanleika og breytileika á blogginu. Svona ef einhverjum langar í.

Svo er ég búinn að eignast nýja myndavél. Agfa Silette 1.


Hún virkar ennþá og ég er búinn að setja í hana filmu og taka nokkrar myndir, svo er bara að sjá útkomuna.

Fear & imagination

This is life

Ég var í ansi mörgum djobbum í fyrra.

  • Öryggisvörður Securitas
  • Öryggisvörður Öryggismiðstöðin
  • Bifvélavirki Fiat
  • Þjónustfulltrúi hjá Ingvari Helgasyni
  • Kerfisfræðingur UT Ráðgjöf

Eða nei. Hélt það væri fleiri störf. Boing.

Civil war

Íslenska samfélagið er núna að ganga í gegnum ansi mikin jarðskjálfta eins og flestir ættu að vita, nema að þeir hafa sofið undir steini.

Fjármálin eru “í brennidepli”. Atvinubilstjórar mótmæla, fyrrverandi Shell kóngur og stjórnarformaður Coke eru á leiðini á hausin. Íslenska krónan er veikari en nokkru sinni fyrr og útlenskir fjárfestar eru logandi hræddir við bláa lónið. Og það merkilegasta við þetta er að stjórnarandstaðan er búin að vera við þessu í mörg ár, alveg frá byggingu kárahnjúkavirkjanar. Jafnvel fyrr - ég bara man ekki eftir því. Og allan þennam tíma hefur hún verð að tala fyrir daufum eyrum. Íslendingar hafa haft meiri áhuga á þessari “frábæru” útrás bankana og fleiri stórfyrirætkja, svosem FL Group, Exista og DeCode.

Fyrir ári síðan var gengið í FL gourp rétt yfir 30. Núna er það rétt tæp 8. Jón Ásgeri jóhannesson var að rembast við að uskýra fyrir hluthöfum hvernig og hversvegna hann og félagar hefðu talap 67 miljörðum króna árið 2007. Ég bara spyr, hvernig ber sig félag sem tapar svona stjarnfræðilegum upphæðum, á hvaða fjármagni er þetta að ganga?

Svarið er einfalt. Allir þessir fugla sem voru moldríkið fyrir hálfu ári-ári síðan tóku allir lán í útlenskri mynt til að borga verðbréfakaup. Sama gerðu þessi stóru félag. Svo núna þegar allt er sprungið vegna of mikilla fjárfestinga fer allt til fjandans. Krónan veikist gríðarlega og svo koma bankarnir og heimta sinn penging, og þá eiga þessir menn og félög ekki krónu. Allt er farið til andskotans. Bankarnir eru á leiðinni á hausin og kreppan er skollin á. FL Group er bara eitt dæmi af mörgum. Íslensk fjármál eru ekki í góðum málum og verður bara verra ef það verður ekki mikil samdráttur í nánd. Seðlabankinn er hækka stýrivexti, til að gera lán dýrari, sem á að draga úr eyðslu og koma jafnvægi á lífið. Það er líka verið að tala um að Seðlabankinn eigi að lána bönkanum pening til að hjálpa þeim að borga upp útlensku skuldirnar.

Ég hef líka lesið um það í fjölmiðlum hversu ílla Seðlabankanum hefur gengi eftir að Davíð nokkur Oddson tók við stjórn. Persónulega finnst mér að það ætti að reka hann og jafnvel ganga það langt að gera hann útlægan úr Íslandi. Jafvel afi minn sem hefur alla ævi verið haður Sjálfstæðismaður kaus annað núna seinast og þar seinast út af þessum manni.

Það er svo mikið um þetta málefni sem ég vill hafa sagt, en það er einmitt málið með blogg - allir eru orðni sínir egin fjölmiðlar með mis-gáfulegar skoðanir. Ég líka.

Next entries »